:AIR 203
Þann 18. nóvember 2006 var fyrstu Eldflaug Amateur Icelandic Rocketry skotið upp. Haldið var af stað að Vígdísarvöllum, þar sem skotið fór fram, snemma morguns. Veðrið var stórkostlegt, heiðskýrt og nánast engin vindur. Það eina sem gat haft áhrif var kuldinn sem var um -5°C en ekki kom hann að sökum.
Eitthvað reyndist nú erfiðara að komast á staðinn en áætlað var og festust þrír bílar og einnig sprakk hjá tveimur. En allt hafðist þetta nú að lokum, en skotið var upp klukkutíma seinna en áætlað var.
Þegar á staðinn var komið hófum við að setja upp búnaðinn eins og skotpall og auglýsingaskilti. Einnig þurfti að huga að því fólk héldi sig í hæfilegri fjarlægð og fengum við Lögregluna frá Hafnarfirði og Grindavík til að sjá um það. Gróflega ágiskað voru um 100 manns sem horfðu á.
Þegar við höfðum gert allt tilbúið settum við flaugina á skotpallinn og komum okkur fyrir í 100 metra fjarlægð þar sem við ýttum á skothnappinn. Nánast um leið hófst hún á loft og þvílíkur kraftur. Hún var aðeins komin í 92 metra hæð er hún náði hámarkshraða sínum sem var 590 km/klst. Á 15 sekúndum náði hún hámarkshæð upp á 1081 metra. Hámarkshröðunin á þessum tíma var upp á 34 g. Hún sveif svo til jarðar og lenti algjörlega ósködduð 400-500 metra frá skotstað.
Við viljum þakka öllum þeim sem komu að máli og mættu á staðinn.
Hér fyrir neðan má sjá myndir af skotinu. Það má stækka myndirnar með því að klikka á þær og einnig látum við myndirnar fylgja með í fullum gæðum.
Eftirfarandi mynd var tekin af Jóhanni þór Jóhannssyni
Eftirfarandi myndir voru teknar af Magnúsi Má Guðnasyni.
Hér má ná í myndirnar í fullum gæðum (34.7 MB - rarað)
Eftirfarandi myndir voru teknar af Ölmu Bergsveinsdóttur.
Hér má ná í myndirnar í fullum gæðum (22.7 MB - rarað)
Eftirfarandi myndir voru teknar af Garðari Þór Ingvarssyni.
Hér má ná í myndirnar í fullum gæðum (13.7 MB - rarað)




