:Um okkur
Að verkefninu standa Smári Freyr Smárason Pípari úr Iðnskólanum í Hafnarfirði og Magnús Már Guðnason nemi í Efnaverkfræði í DTU í Danmörku. Steinn Hlíðar Jónsson hætti í janúar 2007.
Markmið með Áhugamannafélaginu AIR (Amateur Icelandic Rocketry) er að hanna og smíða áhugamannaeldflaugar. Um er að ræða nýsköpunarverkefni hér á landi þar sem aldrei áður hefur verið skotið upp eldflaug sem hönnuð hefur verið af Íslendingum (að okkur vitandi).
Upphaflegar áætlanir hljóðuðu upp á þrjár eldflaugar í sumar (2006) en þar sem ekki hefur fengist nógur tíma til að smíða og hanna þær allar á svo skömmum tíma munu líklegast einungis tvær verða tilbúnar á þessu ári.
Aðalmarkmið verkefnisins til að byrja með er að komast yfir hljóðhraða eða á um 1200 km/klst. Þess má geta að flaugin yrði sú fyrsta í heiminum til að ná hljóðhraða sem knúin er áfram af elsneytinu sem við höfum gert tilraunir á. Þess má geta að eldsneytið er gert úr saltpétri, sykri, þrúgusykri og ávaxtasykri og er algjörlega vistvænt. Stefnan er að skjóta þessari flaug einhvern tímann á næsta ári (2007)
Seinna meir langar okkur að komast yfir veðrahvolfið eða yfir 10 km en það mun skýrast seinna hvort þær áætlanir ganga upp.
Þar sem þetta verkefni er unnið að mestu leyti á styrkjum þurfum við fjársterka aðila til að taka þátt í þessu með okkur. Ef þú eða þitt fyrirtæki hefur áhuga á að styrkja verkefnið má hafa samband (eldflaug[at]gmail.com) við okkur eða einfaldlega leggja inn á reikninginn okkar:
Áhugamannafélagið AIR kt. 420606-0280. Bankareikningur nr. 140-26-3901.
Smári Freyr Smárason
smari[at]eldflaug.com
+354 - 846-1290
Magnús Már Guðnason
magnus[at]eldflaug.com
+45 - 5314-9586
+354 - 897-9201



