:Fréttir

Eldflaugaskot sunnudaginn 23. ágúst klukkan 13:00!

20.Aug.2009 - 01:00

Vængir og nef

Jæja þá er komið að því!

Eldflaugaskotið verður á sunnudaginn klukkan 13:00 á Höskuldarvöllum við Keili. Flaugin sem um ræðir er um 8 kg og þar af er drifefnið um 2 kg. Samkvæmt reikningum ætti flaugin að ná um 1000 km/klst og 3 km hæð en það tekur hana 25 sekúndur. Mesta hröðun er í kringum 17 g.

Hér er kort af leiðinni Leiðin er greiðfær öllum venjulegum fólksbílum en vegurinn er þó nokkuð mikið þvottabretti á köflum. Gerið ráð fyrir minnst 45 min akstri frá Reykjavik.

Ég vil vinsamlegast biðja fólk um að virða þær reglur sem gilda um utanvegsakstur og fylgja leiðbeiningum okkar um hvar er best að leggja bílum. Einnig vil ég biðja fólk um að fara eftir öllum þeim öryggisreglum sem við setjum. Við munum girða skotsvæðið af og vert er að passa að börn leiki ekki lausum hala enda sjá þau oft ekki hvar hætturnar leynast þótt við stóru börnin gerum það. Við viljum engin slys!

Einnig væri gott að fá svar frá þeim sem ætla að koma til að geta áætlað fjölda.

Ennþá á eftir að mála mótohólkinn og vængina en þá verður flaugin sett saman í fyrsta sinn og frumsýnd :)



   > Athugasemdir (0)


Eldflaugaskot á næstu grösum

16.Aug.2009 - 01:00

Stefnt er að skjóta upp eldflauginni þann 22. eða 23. ágúst milli 12:00 og 15:30 nálægt Keili. Nánari upplýsingar eru þvi miður ekki til staðar vegna óvissu um veður.

Ýmislegt á eftir að gera og þeir sem hafa áhuga að hjálpa til næstu daga eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Magnús í síma 8979201 eða magnus[at]eldflaug.com

Óskað er eftir hjálp með rennivinnu, rafeindabúnað, málun á eldflaug og skotpalli, uppsetningu á skotstað ofl...



   > Athugasemdir (0)


Eldflaugafélagið í morgunblaðinu

13.Jul.2009 - 01:00

Síðastliðinn þriðjudag (7. júlí 2009) birtist ágætis grein á baksíðu morgunblaðsins um starfsemi félagsins.

Hægt er að nálgast baksíðuna hér



   > Athugasemdir (0)


Óskum eftir prófílum

08.Jul.2009 - 01:00

Eldflaugafélagið er að leita eftir álprófílum sem notaðir verða í skotpall og hafa þann tilgang að stýra flauginni.

Hér til hliðar er prófílinn sem okkur vantar. Þessi tegund er frá fyrirtæki sem heitir Rexroth og Landvélar eru með umboðið en vandamálið er að þetta er ekki lagervara hjá þeim og því mjög kostnaðarsamt að flytja inn þá 4-6 metra sem við þurfum.

Ef einhver á þetta til eða veit um einhvern sem lumar á þessu eða svipuðum prófílum þá má hann endilega hafa samband við Magnús í síma 8979201 eða magnus@eldflaug.com



   > Athugasemdir (0)


Trússar fyrir skotpall

12.Jun.2009 - 01:00

Trússar úr áli

Eldflaugafélagið er að leita eftir svokölluðum trússum sem eru notaðir við uppsetningu á td. auglýsingaskiltum, hljómleikasviðum og ljósabúnaði.

Ef einhver getur bent okkur á sölu eða leiguaðila sem er tilbúinn til að leigja, selja, lána eða gefa okkur þá endilega hafið samband við Magnús í síma 8979201 eða magnus[at]eldflaug.com

Hér til hliðar má sjá trúss í öllu sínu veldi. Hugmyndin er að nota þessar súlur til að smíða skotpall.



   > Athugasemdir (2)


Grind og flangsi fyrir rafeindabúnað

28.May.2009 - 01:00

Á myndunum þremur er hægt að sjá grindina, flangsann og önnur festistykki fyrir rafeindabúnaðinn. POM plasstykkjunum hefur verið skipt út fyrir messingsplötur Þetta var fyrst og fremst gert til að auka styrk.

Rafeindabúnaðurinn er festur á 1 mm þykka álplötu. Álplatan er styrkt með 6x6 mm firkant stöngum en þær eru festar með þremur M3 boltum. Stangirnir eru snittaðar fyrir M3 bolta í endann og messingsplöturnar festar þar á.



Neðri messingsplatann er undirsinkuð fyrir M3 boltana sem festir eru upp í stangirnar. Með þessu situr platan slétt við flangsann en flangsinn er festur með M4 boltum við messingsplötuna.

CO2 gasþrýstibúnaður er festur á flangsann og er notaður til að skjóta út fallhlíf í fyrirfram ákveðinni hæð. Notuð er smá hleðsla af púðri til að skjóta stimpli af stað sem rífur gat á CO2 hylkið. CO2 gas þenst þá út í fallhlífarhólfið og skýtur fallhlífinni út.



Rafeindabúnaðurinn samanstendur af eftirfarandi einingum:

Flugtölvu - mælir hæð, hraða og hröðun. Forritanleg fyrir stýringu á fallhlífarbúnaðinum
GPS móttakara - GPS loftnet nemur staðsetnignarhnit og sendir áfram í RF sendinn sem áframsendir hnitin niður í RF mótakara á jörðu niðri
RF sendi - 433 MHz
2x 2200 mAh 7.2V rafhlöðum



   > Athugasemdir (0)


Flangsi og festiplötur

29.Mar.2009 - 01:00

Flangsi, plata og CO2 búnaður

Að undanförnu hefur félagið búið til flangsann sem heldur saman tveimur skrokkhlutum eða þar sem rafeindabúnaðurinn og fallhlífin er geymd. Flangsinn heldur einnig CO2 fallhlífsskotbúnaðinum á sínum stað eins og sjá má hér til hliðar. Flangsinn var búinn til úr 6063 áli. Eftir á að bora og snitta fyrir M4 bolta. Undirsinkaðar boltaskŕufur eru svo notaður til að festa skrokkinn og flangsann saman.



Flangsi og plötur

Einnig smíðuðum við tvær festiplötur sem halda rafeindabúnaðinum á sínum stað. Álstangir eru festar á plöturnar og álplata fest á stangirnar. Á álplötuna er svo rafeindabúnaðurinn festur en hann samastendur af þremur megin hlutum eða flugtölvu, GPS móttakara og RF sendi sem sendir GPS staðsetningarhnit niður á jörðu í rauntíma (e. real time).



Flangsi og plata samansett

Teikningar af flangsanum og plötunum.
Flangsi
Neðri diskur
Efri diskur





   > Athugasemdir (0)


 
 
Til baka Áfram

©2006 - hönnun: Elvar Steinn ( elvarsteinn[att]simnet.is )