:Fréttir
Eldflaugin er fundin
25.Oct.2009 - 01:00
Eldflaugin Globos fannst í dag eða tveimur mánuðum eftir að henni var skotið upp. Hún fannst á N 63,58,041 W 022,10,614 en það er eingöngu um km vestar en áætlað var.
Ég vil kærlega þakka Ingimundi Magnússyni leitarstjóra í hundasveit björgunarsveitar Garðarbæjar fyrir hjálpina en hann fann hana í morgun. Fyrir um mánuði síðan leitaði hann að flauginni með einum af sínum leitarhundum en í það skiptið fannst hún ekki og ákvað hann því að prófa aftur. Það greinilega skilaði árangri.
Ég geri nú ráð fyrir að rafeindabúnaðurinn sé ónýtur vegna sjávarseltu og vatns en ég mun athuga hvort hægt sé að bjarga einhverju þegar ég fer til Íslands milli jóla og nýars.
Skrokkur flaugarinnar virðist vera nokkuð heillegur en hann samanstendur megninu til af áli og plasti.
Hér eru nokkrar myndir
Þessum áfanga er því lokið og vil ég enn og aftur þakka öllum þeim sem komu að verkefninu beint og óbeint. Ég stefni á að skrifa ítarlega skýrslu um verkefnið sem verður birt á heimasíðu okkar einhvern tímann í nánustu framtíð.
Uppfærsla: Hér má sjá hvar flaugin lenti og einnig áætlaðan lendingarstað.




